Mótahald Kraftlyftingafélags Akureyrar
Mótahald hefur verið burðarás í starfsemi Kraftlyftingafélags Akureyrar (KFA) og er orðinn mikilvægur hluti af menningu félagsins. Frá 1975 til 2025 hefur KFA haldið alls 389 mót, þar af. Akureyrarmót í lyftingum hefur verið haldið óslitið frá árinu 1974, og mót KFA hafa ávallt verið rómuð fyrir glæsileika.
2026
Febrúar
🔹 Aðalfundur – 28. feb
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–28. feb
Mars
🔹 Fjölskyldudagar / opið hús – 13.–15. mars
🔹 Opin tækniæfing – 20. mars
🔹 Þriðjudagsmót – 24. mars
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–31. mars
Apríl
🔹 Páskamót – 4. apríl
🔹 Félagsfundur – 5. apríl
🔹 Sumaropnun hefst – 6. apríl
Maí
🔹 Hópferð & mót – 2. maí
🔹 Ólympískt lyftinganámskeið – 8.–31. maí
🔹 Undirbúningsfundur – 20. maí
🔹 Þáttökumót – 26. maí
Júní
🔹 Steinadagur – 17. júní
🔹 Tónleikar – 27. júní
🔹 Þriðjudagsmót – 30. júní
🔹 Sumaræfingabúðir – 15.–30. júní
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–30. júní
Júlí
🔹 Þriðjudagsmót – 21. júlí
🔹 Aflraunaratleikur – 1. júlí – 31. ágúst
🔹 Klifur- og fjölskyldudagur – 25. júlí
🔹 Lyftingamót (úrtaka) – 18.–19. júlí
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–31. júlí
Ágúst
🔹 Grétarsmótið – 1.–3. ágúst
🔹 Æfingabúðir – 10.–15. ágúst
🔹 Kvöldvaka – 22. ágúst
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–31. ágúst
September
🔹 Þriðjudagsmót – 15. september
🔹 Nýliðadagur (opið hús) – 20. september
🔹 Ólympískt námskeið – 1.–30. september
🔹 Félagsfundur – 25. september
Október
🔹 Þriðjudagsmót – 6. október
🔹 Haustmót – 10. október
🔹 🏆 Heimsmeistaramót (USAPL / IDFPA) – 16.–18. október
🔹 Fyrirlestur – 20. október
🔹 Hrekkjavökuæfing – 31. október
🔹 Félagsfundur – 28. október
Nóvember
🔹 Þriðjudagsmót – 10. nóvember
🔹 Meistaramót – 14. nóvember
🔹 Hópferð (erlend keppni) – 20.–25. nóvember
🔹 Félagsfundur – 27. nóvember
Desember
🔹 Jólaklifur / reset – 17.–20. desember
🔹 Sláttudagur – 20. desember
🔹 Gamlársmót – 31. desember
🔹 Félagsfundur – 13. desember
Janúar 2027
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–31. janúar
🔹 Undirbúningur að aðalfundi – allt mánuðinn
Febrúar 2027
🔹 Aðalfundur – 28. feb
🔹 Byrjendanámskeið – 1.–28. feb
Sérstök mót og viðburðir
KFA hefur haldið ótal mót og viðburði í gegnum tíðina, þar á meðal:
-
Aflraunamót og bekkpressumót í Grímsey
-
Kraftlyftingamót á Vatnajökli
-
Norðurlandamót (1989, 2013 og 2019)
-
Sýningarmót víðsvegar um Norðurland
-
Mótahald á 7 landsmótum UMFÍ víðsvegar um landið (Akureyri, Sauðárkrók, Egilstöðum, Selfossi og Höfn)
Árangur og framtíðarmarkmið í mótahaldi
Árangurinn í mótahaldi Kraftlyftingafélags Akureyrar (KFA) hefur vakið mikla athygli, bæði innanlands og utan. Félagið hafði upphaflega sett sér markmið að halda heimsmeistaramót í kraftlyftingum árið 2025, á 50 ára afmælisári sínu. Það mót var nýlega haldið í Njarðvík með miklum glæsibrag. Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið hafi ekki verið á Akureyri, hefur félagið viðhaldið allri þekkingu, búnaði og skipulagsgetu sem gerir það fært að stefna áfram að alþjóðlegu mótahaldi í framtíðinni.
Það sem skiptir þó mestu máli fyrir félagið er að viðhalda menningu, reynslu og þekkingu innan þess. Þannig getur félagið tryggt reglulegt mótahald og stuðlað að uppbyggingu barna- og unglingastarfs, sem er grunnstoð framtíðarinnar.
Framtíðarmarkmið 2025–2035
KFA hefur sett sér markmið að halda 250 mót á tíu ára tímabili, frá 2025 til 2035. Á mótaskrá Lyftingasambands Íslands (LSÍ) fyrir árið 2025 eru þegar skráð 14 mót á vegum KFA, auk reglulegra viðburða og móta í klifri. Á næstu árum stefnir félagið á að þróa grunnskóla- og framhaldsskólamót á Norðurlandi í bæði lyftingum og klifri:
-
Klifurmót fyrir börn á aldrinum 6–12 ára.
-
Lyftingamót fyrir unglinga á aldrinum 13–16 ára og 17–20 ára.
Markmiðið með þessum viðburðum er að gera þátttöku barna í íþróttamótum aðgengilega og skemmtilega. Með því er lagður grunnur að sterkum félagsskap, aukinni hreyfingu og íþróttamenningu á Norðurlandi.
Lykilatriði í framtíðarsýn félagsins
-
Reglulegt og fjölbreytt mótahald sem nær til allra aldurshópa.
-
Þróun barna- og unglingamóta sem eru sérstaklega sniðin að þörfum yngri iðkenda.
-
Viðhald á menningu og reynslu innan félagsins til að tryggja faglegt og fjölbreytt íþróttastarf.
-
Uppbygging sterkra íþróttagilda og þátttöku sem stuðlar að jákvæðum áhrifum fyrir komandi kynslóðir.
Texti samþykktur á aðalfundi KFA 2025
