
AÐSTAÐAN
Lyftingahöllinn á Hjalteyri - eina fjölíþróttamiðstöð landsins fyrir lyftingaíþróttir
Íþróttaaðstaðan á Hjalteyri
Á Hjalteyri er sérhæfð íþróttaaðstaða með þremur aðskildum æfingasölum:
-
Kraftlyftingasalur (7 pallar)
-
Klifursalur (7m hár)
-
Lyftingasalur fyrir ólympískar lyftingar (7 pallar)
Hver salur rúmar 10–15 manns í einu og er búinn öllum nauðsynlegum búnaði fyrir markvissa þjálfun. Aðstaðan hentar einstaklingsæfingum, hópum og skipulögðum æfingabúðum.
Aðstaðan er sett upp með upphækkuðu keppnisviði sem er hægt að halda lítil mót eða viðburði á veturnar og stærri mót og viðburði á sumrin (með því að opna stóru hurðina við sviðið)
Búnaðurinn – Eitt stærsta safn landsins Við eigum eitt stærsta og fjölbreyttasta safn lyftingabúnaðar á landinu. Hér sameinast forn og fræg tæki frá gömlu skólunum við það nýjasta og besta sem völ er á. Við fylgjum aðeins einni stefnu: Að hafa það besta í boði – alltaf. Gæði umfram magn, en magn er líka til staðar – svo mikið að það er næstum erfitt að halda aftur af sér.
Líkamsrækt og leikvöllur
Líkamsræktarsalir – Grunnurinn að uppbyggingu
Við bjóðum upp á tvo líkamsræktarsali sem styðja við alla þá vinnu sem skiptir öllu máli til að ná árangri:
-
Aðalsalur – af gamla skólanum:
Vel útbúinn með fjölbreyttum tækjum, lausum áhöldum og lóðum. Fullkominn fyrir styrktarvinnu, einangrunaræfingar og aukaþjálfun sem styður við allt æfingaálag. -
Stoðsalur:
Notaður fyrir teygjur, upphitun, hreyfiferla og endurreisnarvinnu. Þessi hluti er oft vanmetinn – en nauðsynlegur fyrir þá sem vilja byggja sig upp af alvöru og halda sér heilsuhraustum til lengri tíma.

Lyftingaskólinn á Hjalteyri er fjölskylduvænn íþróttaskóli þar sem börn, unglingar og fjölskyldur læra grunnatriði styrktarþjálfunar, líkamsbeitingar og heilbrigðrar hreyfingar í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Við sameinum leiki, klifur og þjálfun í lyftingum til að efla hreyfiþroska, líkamsstyrk og sjálfstraust.

ÞJÓNUSTUTÍMI
12:00-22:00 alla virka daga
11:00-22:00 um helgar
ÆFINGAGJÖLD 2025
Gjaldskrá Lyftingaskólans og aðstaða KFA 2025
👶 3–5 ára (með foreldrum)
-
Æfingatími: Sunnudagar 11:15–12:15
-
Gjald:
-
Krílapassi – 20 skipti: 15.000 kr
-
Stakt skipti: 1.000 kr
-
🧒 6–9 ára (foreldrar taka þátt)
-
Æfingatími: Sunnudagar 12:30–14:00
-
Gjald:
-
Krílapassi – 20 skipti: 15.000 kr
-
Stakt skipti: 1.000 kr
-
👧 10–11 ára
-
Æfingatími: Laugardagar 11:00–13:00
-
Gjald:
-
Krílapassi – 20 skipti: 25.000 kr
-
Stakt skipti: 1.500 kr
-
🧑🎓 12–14 ára
-
Æfingatími: Virkir dagar 16:00–18:00 + fjölskylduæfingar laugard. 15:00–16:30
-
Gjald:
-
Unglingapassi – 20 skipti: 25.000 kr
-
Stakt skipti: 1.500 kr
-
Mögulegt að færa yfir í föst mánaðargjöld eftir samráð við þjálfara
-
🧑🔧 15 ára og eldri
-
Æfingatími: Æfingar allt að 6x í viku
-
Gjald:
-
20 skipta passi: 25.000 kr
-
Stakt skipti: 1.500 kr
-
Mögulegt að færa yfir í föst mánaðargjöld eftir samráð við þjálfara
-
🧍♂️ 18 ára og eldri – Óbundin áskrift
-
Aðgangur: Lyftingahöll KFA, opnir æfingahópar, 24/7 aðstaða
-
Gjald:
-
Mánaðaráskrift: 8.500 kr
-
Aðgangskort (ein greiðsla): 2.500 kr
-
Uppsögn tekur gildi að loknum greiddum mánuði – hægt að segja upp hvenær sem er
-
📲 Skráning og greiðslur
-
Fara fram í gegnum: Abler – abler.io/shop/kfa
-
Hægt að kaupa áfyllingar og stök skipti í posanum á Hjalteyri
📞 Tengiliður
-
Hulda B. Waage
-
Sími/SMS: 690-4330
-
Einnig hægt að senda fyrirspurnir í gegnum Abler eða FB
8,500kr
ÁSKRIFT (ENGIN BINDING)
off-peak, iðkendur annara aðildarafélaga ÍBA, UMSE, öryrkjar og sjómenn borga 4290kr (50% afsl.)
Það er hægt að sækja um félagsaðild í gegnum þjálfara og sjálfboðaliða í lyftingahöllinni. Þjónustum eingöngu 100 meðlimi að hverju sinni eins og staðan er í dag.
Það sveiflast alltaf eithvað til milli mánaðar og árstíma þannig það er bara að hafa samband ef þú vilt vera með. Við bjóðum uppá æfingarhópa, þjálfun og þjónustu fyrir öll getu stig, hvort sem það eru algjörir byrjendur eða afreksmenn.

🏠 Leiga á aðstöðu – Lyftingahöllin á Hjalteyri
Aðstaðan er til leigu fyrir eftirfarandi:
-
🎉 Afmæli
-
💪 Æfingabúðir
-
🤝 Hópefli og teambuilding
-
🎓 Fræðslu- eða íþróttadaga
Innifalið:
-
Lyftingasalur og klifurveggur
-
Móttökurými og setusvæði
-
Grunnbúnaður og hljóðkerfi
-
Aðgangur að salernum og sturtum
-
Hægt að bæta við leiðsögn, þjálfara eða sérstökum viðburði eftir samkomulagi

Önnur þjónusta og æfingagjöld
🛶 Öryggisreglur fyrir kajaknotkun hjá KFA
1. Notkun og aðgengi:
-
Kajakar eru eingöngu ætlaðir félagsmönnum KFA.
-
Notkun er á eigin ábyrgð.
-
Allir notendur skulu skrá sig áður en farið er á vatnið.
2. Öryggisbúnaður:
-
Allir notendur skulu klæðast viðurkenndum björgunarvestum á meðan á róðri stendur.
-
Gætið þess að kajakar og búnaður séu í góðu ástandi fyrir notkun.
3. Veður og aðstæður:
-
Ekki skal fara á vatnið við óhagstæð veðurskilyrði, þar með talið sterkan vind eða lélega sýn.
-
Notendur skulu meta aðstæður sjálfir og taka ábyrgð á eigin öryggi.
4. Aldurstakmarkanir:
-
Börn undir 18 ára aldri mega aðeins nota kajaka í fylgd með fullorðnum.
5. Viðhald og frágangur:
-
Eftir notkun skal ganga frá kajökum og búnaði á réttan stað.
-
Tilkynnið um öll vandamál eða skemmdir á búnaði til ábyrgðaraðila.

Sérgreinaþjálfarar og leiðbeinendur lyftingaskólans
Æfðu með bestu þjálfurunum

Friðfinnur Gísli Skúlason
Klifurþjálfari og leiðasmiður félagsins

Grétar Skúli Gunnarsson
Kraftlyftinga, og lyftingaþjálfari

Hulda B. Waage
Skólastjóri Lyftingaskólans og lyftingaþjálfari
VERTU MEÐ VERTU STYRKTARAÐILI EÐA SJÁLFBOÐALIÐI
Hjálpaðu okkur
Í UPPBYGGINGUNNI
Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íþróttastarfið í félaginu að fá stuðning fyrirtækja og erum við mjög þakklát fyrir áralangt samstarf félagsins við fyrirtækji og einstaklinga á svæðinu sem hafa gert okkur kleift að byggja upp innviði og þjónustu fyrir þær íþróttir sem við bjóðum uppá

Gagnast langtíma uppbyggingu
AÐALSTYRKTARAÐILI

Barna og unglingastarf
VILTU STYRKJA STARFIÐ?
Mikill meirihluti iðkenda og notenda lyftingahallarinar eru börn, unglingar og ungmenni
