Markmið félagsins
-
Framgangur íþrótta - Að efla sérstaklega lyftingar sem íþrótt og kynna hana fyrir nýjum iðkendum.
-
Að styrkja stöðu félagsins sem leiðandi afl í lyftingum og afreksíþróttum á landsvísu.
-
Uppbygging þjálfunar:
Að bjóða upp á hágæðaþjálfun fyrir alla aldurshópa.
Að vinna að stöðugri menntun og þróun þjálfara.
-
Félagslegt umhverfi:
Að skapa jákvætt, hvetjandi og öruggt umhverfi fyrir alla iðkendur.
Að stuðla að virkni félagsmanna og efla félagsstarf.
-
Keppnisárangur:
Að undirbúa iðkendur fyrir keppni á landsvísu og alþjóðlegum vettvangi.
-
Að auka fjölda iðkenda sem ná framúrskarandi árangri.
-
Sjálfbærni og fjármálastjórn: Að tryggja sjálfbæran rekstur félagsins með skynsamlegri fjármálastjórn.
-
Að vinna að langtímamarkmiðum félagsins, eins og þáttaka iðkenda okkar á Ólympíuleikunum
Markmiðasetning innan sviða
Deildir og svið félagsins hafa sérhæfð markmið sem styðja við heildarmarkmið KFA:
-
Barna- og unglingadeildir:
Að auka hreyfifærni og tæknilega kunnáttu yngstu iðkendanna.
Að kynna lyftingar sem skemmtilega og heilbrigða íþrótt sem hentar öllum. -
Meistaraflokkur:
Að skapa aðstæður til afreka í lyftingum.
Að hvetja iðkendur til að sækjast eftir keppnisárangri og setja sér metnaðarfull markmið. -
Fagráð:
Að tryggja faglega þjónustu og aðhald fyrir iðkendur og þjálfara.
Leiðir til að ná markmiðum
-
Stefnumótun:
Markmið eru skilgreind í stefnuáætlunum sem deildarstjórnir og aðalstjórn samþykkja árlega. -
Mælanleg markmið:
Hvert markmið skal vera sértækt, mælanlegt, framkvæmanlegt, viðeigandi og tímasett (SMART-markmið). -
Eftirlit og endurskoðun:
Markmið eru rýnd reglulega til að tryggja framgang þeirra og gera nauðsynlegar breytingar ef þörf krefur.
Stefna Lyftingaskólans
Lyftingaskólinn byggir á þeirri sýn að lyftingar séu ekki aðeins íþrótt – heldur uppbygging á líkama, huga og gildum frá unga aldri.
Við stefnum að því að:
-
Kenna lyftingar sem nám, þar sem grunnfærni, hreyfiþroski og sjálfsaga þróast stig af stigi.
-
Byggja upp einstaklinga – ekki bara afreksfólk – með sterkum gildum, þekkingu og sjálfstrausti.
-
Sameina hreyfingu og leik á bernskuárum við markvissa tækniþjálfun unglingsára.
-
Styrkja fjölskyldutengsl, þar sem foreldrar og börn æfa saman og styðja hvert annað.
-
Bjóða fagmennsku og aðgengi fyrir öll börn og ungmenni – ekki aðeins þá sem stefna á toppinn.
Markmið okkar er að gera lyftingar að hluta af uppvexti á Íslandi – með gleði, virðingu og gæðum að leiðarljósi.