top of page
Fjölskylduvænt íþróttastarf fyrir börn, unglinga og fullorðna

í einstöku umhverfi á Hjalteyri.

Home: Welcome
Home: Homepage_about

AÐSTAÐAN

Lyftingahöllinn á Hjalteyri - eina fjölíþróttamiðstöð landsins fyrir lyftingaíþróttir

🏟️ Aðstaða á Hjalteyri

Sérhæfð aðstaða með þremur æfingasölum:

 

Kraftlyftingasalur (4 pallar)

Klifursalur (7 m hár)

Lyftingasalur (ólympískar lyftingar, 7 pallar)

 

Hver salur rúmar 10–15 manns og er fullbúinn fyrir markvissa þjálfun.

Keppnisaðstaða

Upphækkað keppnissvið sem hentar:

  • minni mótum yfir vetur

  • stærri viðburðum yfir sumarið

  • Notum fyrir skylmingar og kast, karíókí og karate utan móta

Búnaðurinn

Eitt stærsta og fjölbreyttasta safn lyftingabúnaðar á landinu.

Sambland af:

  • gömlum og sögulegum tækjum

  • nýjasta og besta búnaði sem völ er á

 

Stefna

Að hafa það besta í boði – alltaf.

Líkamsrækt og leikvöllur

Líkamsræktarsalir – Grunnurinn að uppbyggingu

Við bjóðum upp á tvo sali sem styðja við alla þá vinnu sem skiptir máli til að ná árangri.

Aðalsalur – af gamla skólanum

Vel útbúinn með:

  • fjölbreyttum tækjum

  • lausum áhöldum og lóðum

 

Stoðsalur

Notaður fyrir:

  • upphitun

  • teygjur

  • hreyfiferla

  • endurreisnarvinnu

  • Karate

  • Gólfhermir

Home: Feature


Lyftingaskólinn á Hjalteyri er fjölskylduvænn íþróttaskóli þar sem börn, unglingar og fjölskyldur læra grunnatriði styrktarþjálfunar, líkamsbeitingar og heilbrigðrar hreyfingar í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Við sameinum leiki, klifur og þjálfun í lyftingum til að efla hreyfiþroska, líkamsstyrk og sjálfstraust.

Home: Homepage_about
Untitled.png

ÞJÓNUSTUTÍMI

12:00-22:00 alla virka daga
11:00-17:00 um helgar

Home: OpeningHours

Aðild og aðgangur
 

Ársgjald félagsins

  • 25.000 kr / ár

  • Innifalið:

    • Aðgangur að félaginu

    • Þátttaka í starfi og æfingum

    • Almennar skipulagðar æfingar

    • Fyrir börn og fullorðna

24/7 aðgangur að aðstöðu

  • 8.500 kr / mánuði

  • Frjáls aðgangur að æfingaaðstöðu allan sólarhringinn

  • Fyrir sjálfstæða iðkendur

Þjálfunaráskrift

  • 33.500 kr / mánuði

  • Innifalið:

    • Einstaklingsmiðað æfingaprógram

    • 1× klst viðtal á mánuði

    • Vikulegt eftirlit og samskipti

    • Stöðugar lagfæringar og eftirfylgni

Fyrir þá sem vilja markvissa og stöðuga þróun

Home: Product

Sérgreinaþjálfarar og leiðbeinendur lyftingaskólans

Æfðu með bestu þjálfurunum

11887141_1635367280077052_1529412971_a.jpg

Friðfinnur Gísli Skúlason

Klifurþjálfari og leiðasmiður félagsins

Grétar Skúli Gunnarsson

Kraftlyftinga, og lyftingaþjálfari

485841911_1175401023921097_3476012241653963672_n.jpg

Hulda B. Waage

Skólastjóri Lyftingaskólans og lyftingaþjálfari

Home: TeamMember

8,500kr

ÁSKRIFT (ENGIN BINDING)

off-peak, iðkendur annara aðildarafélaga ÍBA, UMSE, öryrkjar og sjómenn borga 4290kr (50% afsl.)

Það er hægt að sækja um félagsaðild í gegnum þjálfara og sjálfboðaliða í lyftingahöllinni. Þjónustum eingöngu 100 meðlimi að hverju sinni eins og staðan er í dag. 

Það sveiflast alltaf eithvað til milli mánaðar og árstíma þannig það er bara að hafa samband ef þú vilt vera með. Við bjóðum uppá æfingarhópa, þjálfun og þjónustu fyrir öll getu stig, hvort sem það eru algjörir byrjendur eða afreksmenn.

480641734_1153346226126577_2087919296776722545_n.jpg

🏠 Leiga á aðstöðu – Lyftingahöllin á Hjalteyri

Aðstaðan er til leigu fyrir eftirfarandi:

  • 🎉 Afmæli

  • 💪 Æfingabúðir

  • 🤝 Hópefli og teambuilding

  • 🎓 Fræðslu- eða íþróttadaga

Innifalið:

  • Lyftingasalur og klifurveggur

  • Móttökurými og setusvæði

  • Grunnbúnaður og hljóðkerfi

  • Aðgangur að salernum og sturtum

  • Hægt að bæta við leiðsögn, þjálfara eða sérstökum viðburði eftir samkomulagi

491296774_1198688528259013_7064581352434460075_n.jpg

Önnur þjónusta og æfingagjöld

🛶 Öryggisreglur fyrir kajaknotkun hjá KFA

1. Notkun og aðgengi:

  • Kajakar eru eingöngu ætlaðir félagsmönnum KFA.

  • Notkun er á eigin ábyrgð.

  • Allir notendur skulu skrá sig áður en farið er á vatnið.​

2. Öryggisbúnaður:

  • Allir notendur skulu klæðast viðurkenndum björgunarvestum á meðan á róðri stendur.

  • Gætið þess að kajakar og búnaður séu í góðu ástandi fyrir notkun.​

3. Veður og aðstæður:

  • Ekki skal fara á vatnið við óhagstæð veðurskilyrði, þar með talið sterkan vind eða lélega sýn.

  • Notendur skulu meta aðstæður sjálfir og taka ábyrgð á eigin öryggi.​

4. Aldurstakmarkanir:

  • Börn undir 18 ára aldri mega aðeins nota kajaka í fylgd með fullorðnum.​

5. Viðhald og frágangur:

  • Eftir notkun skal ganga frá kajökum og búnaði á réttan stað.

  • Tilkynnið um öll vandamál eða skemmdir á búnaði til ábyrgðaraðila.​

489961728_1202850351176164_4280296209959726410_n.jpg

VERTU MEÐ VERTU STYRKTARAÐILI EÐA SJÁLFBOÐALIÐI

Home: Product

Hjálpaðu okkur

Í UPPBYGGINGUNNI

Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íþróttastarfið í félaginu að fá stuðning fyrirtækja og erum við mjög þakklát fyrir áralangt samstarf félagsins við fyrirtækji og einstaklinga á svæðinu sem hafa gert okkur kleift að byggja upp innviði og þjónustu fyrir þær íþróttir sem við bjóðum uppá

Gagnast langtíma uppbyggingu

AÐALSTYRKTARAÐILI

Barna og unglingastarf

VILTU STYRKJA STARFIÐ?

Mikill meirihluti iðkenda og notenda lyftingahallarinar eru börn, unglingar og ungmenni

Stationary photo
  • facebook
  • instagram

Verksmiðjan Hjalteyri Akureyri Iceland 604

©2017 by Kraftlyftingafélag Akureyrar. Proudly created with Wix.com

bottom of page